Withsara Wellness Retreat
Konur kjarna sig, fylla á orkutankinn og setja sjálfa sig í fyrsta sætið
Sólarhringsferð á Hótel Geysi 30.-31. maí
Withsara Wellness Retreat verður haldið í þriðja skipti á Hótel Geysi og eins og áður má búast við ógleymanlegri upplifun í 24 klst í dásamlegu umhverfi, nálægð við náttúruna þar sem við nærum bæði líkama og sál. Við æfum saman, njótum félagsskapar og nærveru, söfnum kröftum, fáum innblástur og hvatningu, borðum góðan og nærandi mat og eigum eftirminnilegar stundir saman. Fullkomin stund með vinkonum, systur, mömmu, frænku eða sjálfri sér.
Ógleymanleg upplifun frá upphafi til enda






Allt um Withsara Wellness Retreat
Innifalið
Withsara Wellness Retreat verður ógleymanleg upplifun frá upphafi til enda. Eftirfarandi er innifalið í heildarverðinu:
-
Hressing við komuna
-
Þriggja rétta kvöldmáltíð á Geysi
-
Morgunverða hlaðborð
-
Gisting í eina nótt á Hótel Geysi
-
Þrír Withsara tímar
-
30 mín Workshop með Söru
-
Mjög veglegar gjafir
Fyrir hvern er ferðin
Withsara Wellness Retreat er fyrir allar konur sem vilja núllstilla sig, dekra við sig í einn sólahring og næra sig með hreyfingu, góðum mat og góðum félagsskap. Withsara æfingarnar eru fyrir öll getustig. Upplifunin er kjörin fyrir vinkonur, mæðgur og vinkonuhópa og ekki síður fyrir stakar konur sem vilja kúppla sig úr daglegri rútínu í einn sólahring. Boðið verður uppá að deila eða vera einar í herbergi.
Dagskrá
30. maí
12:30 -13:00 Mæting á Hótel Geysi
13:30 Útvera og hressing
15:00 Check-in á Hótel Geysi
16:30 Withsara æfing
17:30 Frjáls tími
19:30 Kvöldmatur
22:00 Teygjur og slökun
31. maí
7:30 Morgunskokk með Elísabetu Gunnars (fyrir áhugasama)
8:00-9:00 Morgunverða hlaðborð
9:00 Workshop með Söru
9:30-10:00 Withsara æfing
11:00 Hressing og check-out



Bóka
Boðið er upp á þrjár tegundir af herbergjum og að deila herbergi með vinkonu eða vera ein. Ath. að allt sem nefnt var hér að ofan er innifalið í neðangreindu verði.
Ef þú vilt gera vel við þig og bæta við auka nótt fyrir eða eftir Retreat-ið þá er hægt að panta það í gegnum Hótel Geysi.
Ef þú ert með einhverjar spurningar þá er hægt að hafa samband við retreat@withsara.co og við svörum þér um hæl. Einnig hægt að hafa samband vegna hópapantana - 10 eða fleiri.
Ath. takmörkuð pláss er í boði.

Standard herbergi
Standard tvær saman: 59.990 kr. per konu
(bókað og greitt fyrir báðar samtals 119.980 kr.)
Standard ein í herbergi: 82.990 kr. per konu

Deluxe herbergi
Deluxe tvær saman: 69.990 kr. kr per konu (bókað og greitt fyrir báðar samtals 139.980 kr.)
Deluxe ein í herbergi: 92.990 kr per konu

Svíta
Svíta tvær saman: 79.990 kr per konu
(bókað og greitt fyrir báðar samtals 159.980 kr.)
Svíta ein í herbergi: 102.990 kr per konu